top of page

Vertu með í Listarölti

Okkur langar að bjóða þér að taka þátt í Listarölti, sameiginlegri helgi opinna vinnustofa um Eyjafjörð og nágrenni, laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október 2026, kl. 13–17.

Markmiðið er að vekja athygli á fjölbreyttri listsköpun á svæðinu og bjóða almenningi að heimsækja vinnustofur, hitta listafólkið og sjá hvar og hvernig verkin verða til. Allar vinnustofurnar verða opnar á sama tíma til að skapa spennu og hvetja fólk til að ferðast á milli staða.

Gestir fá sérstakt vegabréf Listarölts með upplýsingum um þátttakendur og korti af vinnustofunum. Hver vinnustofa útbýr sinn eigin stimpil, tákn eða áritun sem gestir safna í vegabréfið. Þeir sem safna tilskildum fjölda stimpla geta tekið þátt í happdrætti.

Hver þátttakandi býður jafnframt eitt sérstakt tækifærisverk Listarölts til sölu á 10.000 kr. Verkin verða kynnt á samfélagsmiðlum fyrir viðburðinn en verða ekki boðin til sölu fyrr en vinnustofurnar opna kl. 13. Með þessu viljum við gefa fleirum færi á að eignast listaverk og hvetja gesti til að heimsækja vinnustofurnar.

Til að taka þátt þarf að:

  • hafa vinnustofuna opna báða dagana, 3. og 4. október, kl. 13–17;

  • fylla út skráningarformið;

  • senda vandaða mynd af verki til notkunar í kynningarefni;

  • senda tengla á vefsíðu og samfélagsmiðla, ef við á;

  • útbúa stimpil, tákn eða áritun fyrir vegabréf Listarölts;

  • bjóða eitt listaverk til sölu á 10.000 kr.;

  • aðstoða við að kynna viðburðinn á eigin miðlum.
     

Einnig er hægt að leggja fram verk í sameiginlegt happdrætti, en það er valfrjálst.

Hver vinnustofa ræður hvernig tekið er á móti gestum. Þú getur boðið upp á veitingar, sýnikennslu eða aðra dagskrá ef þú vilt, en það er alls ekki skilyrði.

Við sjáum um sameiginlega vefsíðu, kynningar á samfélagsmiðlum, prentað vegabréf og kort ásamt því að kynna viðburðinn fyrir fjölmiðlum og öðrum aðilum á svæðinu.

Þátttökugjald er 5.000 kr. fyrir hverja vinnustofu.

Skráning fer fram hér

Skráningarfrestur er:
18. september 2026

Við vonum innilega að þú takir þátt og hjálpir okkur að gera sýnilega þá fjölbreyttu og öflugu listsköpun sem á sér stað á svæðinu.
Dagný Reykjalín, Elín Berglind og Gillian Pokalo


Listarölt - formleg síða fyrir gesti verður listarolt.online og þar verða að finna upplýsingar fyrir gesti.
listarolt@gmail.com

Registration FAQ

When is the registration deadline?
Are there any participation requirements?

Registration deadline is 18. september 2026

There are no formal entry requirements. We welcome artists and craftsmen working in Akureyri and nearby - in Eyjafjörður and close by.

How do I register as an exhibitor?
Can I register for a single session?

Fill in the registration form here

By registering we are welcoming guest in our studio's on 3. and 4. october 2026 between 13-17 o'clock

bottom of page