Þar sem listin verður til
Laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október kl. 13–17
Listarölt er helgi opinna vinnustofa á Akureyri og í nágrenni. Listamenn opnar dyr sínar og bjóða gestum að kynnast verkunum og sköpunarferlinu.
Skipuleggðu þitt eigið listarölt, skoðaðu eða keyptu fjölbreytt verk beint af listamanninum.
Veldu þína leið, taktu með þér góða félaga og komdu á Listarölt.

Hvar og hvenær?
Komið og njótið Listarölts, viðburðar þar sem þið fáið einstakan aðgang að vinnustofum listafólks á Akureyri og nágrenni. Skoðið sköpunarferlið af eigin raun og nælið ykkur í listaverk. Þetta verður ógleymanlegt ævintýri fyrir alla listunnendur. 3. og 4. október kl. 13-17.
Akureyri og nágrenni
Upplýsingar fyrir þátttakendur
Tækifæri fyrir listamenn/vinnustofur að taka þátt í Listarölti 2026

Auglýsingar og markaðsmál
Markaðsmál og auglýsingar fara fram á helstu miðlum og í gegnum auglýsingabæklinga sem fara á heimili á norðurlandi.
Taktu þátt
Listafólki og skapandi vinnustofum um Eyjafjörð og nágrenni er boðið að taka þátt í Listarölti 2026.
Þátttakendur skuldbinda sig til að hafa vinnustofu sína opna báða daga viðburðarins, laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október, kl. 13–17. Hver vinnustofa ræður hvernig hún tekur á móti gestum. Heimilt er að bjóða upp á veitingar, sýnikennslu eða aðra dagskrá en það er ekki skilyrði fyrir þátttöku.

















